Fara í efni

Fréttir

Metaðsókn hjá VIRK

2.576 einstaklingar hófu starfsendurhæfingu á vegum VIRK á árinu 2025. Ekki hafa fleiri byrjað starfsendurhæfingu hjá VIRK. Síðustu þrjá mánuði ársins bárust 27% fleiri beiðnir um starfsendurhæfingu til VIRK en síðustu þrjá mánuði fyrra árs.

Styrkir VIRK 2026

VIRK auglýsir eftir umsóknum um styrki til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna. Umsóknarfrestur rennur út 15. febrúar.

Rétt þjónusta á réttum tíma

VIRK leggur áherslu á að tryggja rétta þjónustu á viðeigandi tíma fyrir hvern og einn þjónustuþega. Sérstakir faghópar halda utan um þjónustu fyrir ákveðna hópa þjónustuþega.

VIRK framúrskarandi fyrirtæki

VIRK er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2025 samkvæmt Creditifno, nr. 62 af rúmlega 1100 fyrirtækjum sem teljast framúrskarandi.

Auknir möguleikar fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu

Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi er einfaldara, greiðslur hækka, dregið er úr tekjutengingum og fólki gert auðveldara að taka þátt á vinnumarkaði kjósi það svo. M.a. er stuðningur aukinn við fólk í endurhæfingu og áhersla lögð á að hindra að fólk falli milli kerfa og endi með ótímabært örorkumat.

Styrkjum VIRK úthlutað

Alls bárust 47 umsóknir og 22 þeirra fengu styrk þetta árið. Að þessu sinni var horft sérstaklega til þess að styrkja verkefni og/eða úrræði sem sniðin voru að þörfum einhverfra einstaklinga.

Hvað getum við gert til að styðja við starfsfólkið okkar?

Það hefur lengi verið vitað að góð vinna hefur jákvæð áhrif á heilsu einstaklinga sem gerir þeim kleift að vera afkastamiklir í vinnunni1. Þá eru mörg dæmi um að það að heilsubrestur komi ekki í veg fyrir að einstaklingar séu virkir á vinnumarkaðinum. Rannsóknir hafa sýnt að það að vera utan vinnumarkaðar vegna atvinnuleysis eða heilsubrests getur tengst ýmsum heilsufarslegum og félagslegum vandamálum svo sem lélegri líkamlegri heilsu og vanlíðan. Það er því mikilvægt að lögð sé áhersla á að gera starfsfólki kleift að vera áfram í vinnunni ef það getur það og innleiða ýmsa verkferla sem aðstoða vinnuveitendur við að átta sig á hvaða starfsfólk þurfi mögulega á aðstoð að halda til þess.

Hvað kostar kulnun? Efnahagsleg áhrif vinnutengdrar streitu

Niðurstöður okkar benda til þess að vinnutengd streita hafi í för með sér verulegan efnahagslegan kostnað. Kulnun hefur neikvæð og varanleg áhrif á framleiðni einstaklinga og getu þeirra til að sinna störfum sínum, með tilheyrandi tekjutapi fyrir einstaklingana sjálfa og kostnaði fyrir fyrirtæki og hið opinbera. Það er því mikið í húfi að draga úr þessum kostnaði. Niðurstöður okkar sýna jafnframt að líkurnar á kulnun aukast þegar einstaklingar með lágt streituþol veljast í streituvaldandi störf, og að hægt er að spá fyrir um kulnun með nokkurri nákvæmni.

Aukin forvarnaþjónusta hjá VIRK

Í tengslum við stefnumótunarvinnu sem fór af stað hjá VIRK síðastliðið haust var ákveðið og kynnt í desember 2024 að aukin áhersla yrði lögð á forvarnaþjónustu hjá VIRK, m.a. með nýju forvarnasviði þar sem lögð yrði aukin áhersla á aukna þjónustu við einstaklinga og atvinnulíf.

Úrræði í atvinnutengdri starfsendurhæfingu

Einkunnarorð VIRK, fagmennska, metnaður og virðing leggja grunninn að öflugu samstarfi við fjölda fagaðila í starfsendurhæfingu víðsvegar um landið. Samstarfið felur í sér stöðugar umbætur, tilraunaverkefni, þróunarverkefni, áherslu á gagnreyndar aðferðir og mat á þörfum einstaklinga hverju sinni.

Hafa samband